
Valur sótti ansi mikilvæg þrjú stig norður á Akureyri í 8. umferð Bestu deildarinnar í kvöld.
Albin Skoglund kom boltanum í netið skömmu fyrir hálfleik og meira var ekki skorað. Valur er kominn í þriðja sæti með 15 stig en KA hefur 10 stig í sjöunda sætinu.
Keflavík vann þá frábæran sigur á Þór í nýliðaslag suður með sjó. Marin Brigic skoraði eina markið snemma leiks. Lokamínúturnar voru dramatískar, en hinn ungi Einar Freyr Halldórsson klikkaði setti vítaspyrnu í stöngina og framhjá í uppbótartíma.
Keflvíkingar eru í frábæraum málum í sjötta sæti með 11 stig en Þór er í 10. sæti með 6 stig.