fbpx
Föstudagur 22.maí 2026
EyjanFastir pennar

Nína Richter skrifar: Heimkomusorgin

Eyjan
Föstudaginn 22. maí 2026 06:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lífsleiðinn kveður dyra hjá ótrúlegasta fólki. Mestu sólargeislarnir eiga líka stundum daga þar sem allt virðist vera svartnætti og tilgangurinn er óljós. Er þetta allt og sumt?

Vinkona mín er einn slíkur sólargeisli. Hún hækkar orkustigið í öllum herbergjum sem hún mætir í og ég hef aldrei hitt manneskju sem hefur eitthvað slæmt um hana að segja, nema þá vegna afbrýðisemi. Hún er jákvæð og hlý, vill fólki vel og leitar að hinu góða í öllum aðstæðum. Í okkar vinasambandi er ég raunsæismanneskjan og hún er sú sem leitar leiða til að sjá hlutina sem blessun. Hún finnur jákvæðan vinkil í öllum aðstæðum. Það væri óþolandi ef hún væri ekki svona andskoti almennileg.

En svo bregðast krosstré. Í sólskini undanfarinna daga hefur þessi vinkona gengið í gegnum dimman dal sem kom að er virðist upp úr þurru. Eftir hamingjuríka daga í fjölskyldufríi helltist yfir hana sorg sem hún hafði ekki fundið áður. Við sátum á kaffihúsi og í fyrsta sinn í langan tíma þurfti ég að vera bæði raunsæismanneskjan og líka þessi jákvæða. Ég ætlaði ekki að gaslýsa þessar upplifanir, svo ég þagði bara og hlustaði.

Hún hafði rætt málin við Chatgpt, það var hjálplegt. Þetta var víst algengt, sagði gervigreindin, og kom með hugtakið „heimkomusorg.“ Flestir sem hafa ferðast hafa fundið fyrir heimkomusorg, meira að segja þegar lífið heima er yndislegt. Þegar við ferðumst fáum við að máta okkur í önnur hlutverk, henda af okkur ábyrgðinni sem gerir okkur aðeins leiðinlegri útgáfur af okkur sjálfum. Við verðum flest meira forvitin, hvatvís, sexí, fyndnari og afslöppuð þegar við fáum aðeins að anda og teygja lappirnar, jafnvel í hvítum sandi.

Heimkomusorgin var víst þekktur gestur sem gat líka heimsótt hamingjusamt, jákvætt fólk með afburða gott hugarfar.

„Ég hitti mann frá Texas,“ bætti hún síðan við.

„Hann hafði verið með konunni sinni í vikunni áður á einhverjum svona bullriding-viðburði.“

„Oj,“ sagði ég um leið, enda fór hugurinn beint til nautaats á Spáni. Mannskepnan gat einhverra hluta vegna ekki umgengist naut án þess að níðast á þeim eða éta.

„Nei, ekki þannig viðburði. Heldur svona kappreiðar. Þar sem tugir þúsunda Bandaríkjamanna komu saman til að horfa á einhverja menn þeysa um á nautsbaki. Tugir þúsunda.“

„Ég hef aldrei heyrt um þetta,“ svaraði ég.

„Ekki ég heldur,“ svaraði hún og bætti við, „og það er einmitt þess vegna sem lífið er svo stórkostlegt. Það er heill heimur þarna úti, viðburðir með tugum þúsunda manna sem við eigum aldrei neina snertifleti við, sem við höfum aldrei heyrt um á ævinni. Við höfum upplifað svo lítið. Við erum svo einangruð á þessari eyju.“

Og með því hafði hún auðvitað fundið jákvæðan vinkil á þetta allt saman. Með því læknaði hún sjálfa sig af heimkomusorginni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Val Viðreisnar

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Val Viðreisnar
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Góð spurning: Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið?

Sigmundur Ernir skrifar: Góð spurning: Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið?
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Thomas Möller skrifar: NEI er stærra en já

Thomas Möller skrifar: NEI er stærra en já
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Björn Jón skrifar: Mikil er skömm borgarstjórnar í máli séra Friðriks

Björn Jón skrifar: Mikil er skömm borgarstjórnar í máli séra Friðriks
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Yfirþjóðlegt vald ESB

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Yfirþjóðlegt vald ESB
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Viðreisnarvor um allt land

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Viðreisnarvor um allt land
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Óttar Guðmundsson skrifar: Salka Valka

Óttar Guðmundsson skrifar: Salka Valka
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 vikum

Nína Richter skrifar: Þegar Michael Jackson fór í klippingu

Nína Richter skrifar: Þegar Michael Jackson fór í klippingu