fbpx
Fimmtudagur 21.maí 2026
433Sport

Myndband úr Garðabæ í mikilli dreifingu og foreldrar í bænum sagðir öskuillir – „Þetta er bara viðbjóður“

433
Fimmtudaginn 21. maí 2026 20:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Myndband frá leik Stjörnunnar og Fjölnis í 3. flokki karla hefur vægast sagt vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum og var það til umræðu í hlaðvarpinu Þungavigtin.

Leiknum lauk 1-7 en á myndbandinu má sjá Stjörnuna ítrekað gera Fjölni kleift að skora í opið mark þeirra þar sem markvörðurinn var sendur afar ofarlega á völlinn.

„Þetta er orðið þreytandi og við þurfum að útrýma svona gaurum úr fótboltanum, sem eru með einhverja svona stæla. Hvaðan kemur þessi vitleysa?“ sagði Mikael Nikulásson harðorður í Þungavigtinni og á hann þar væntanlega við þá sem leggja leiki svona upp.

„Þarna gefa Stjörnumenn Fjölni sex mörk í leik sem ég held að hafi verið nokkuð jafn, vegna þess að markvörður Stjörnunnar er alltaf uppi á miðju og inni í vítateig andstæðinganna. Hann er ekki í markinu. Ég heyrði það í gær að foreldrar í Stjörnunni væru gjörsamlega brjálaðir. Ég hef það frá mjög góðum heimildum.

Þjálfarar Stjörnunnar mega senda á mig hvað þetta sé ótrúlega flott, en þetta er bara viðbjóður. Þú munt aldrei græða á þessu, þú verður að vera með markmann í fótbolta,“ sagði hann enn fremur.

Myndbandið er hér að neðan, en um það sköpuðust jafnframt miklar umræður á samfélagsmiðlum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Óvænt lið blandar sér í baráttuna um Mo Salah í sumar

Óvænt lið blandar sér í baráttuna um Mo Salah í sumar
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Neymar meiddur nokkrum dögum eftir val í HM-hópinn

Neymar meiddur nokkrum dögum eftir val í HM-hópinn
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Casemiro sagður hafa náð samningi við nýtt félag

Casemiro sagður hafa náð samningi við nýtt félag
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Fær dóm eftir ofsaakstur og að valda líkamstjóni

Fær dóm eftir ofsaakstur og að valda líkamstjóni
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Eiður Smári ræðir um trúna og hvernig hann notar hana – „Ég bið um hjálp þegar ég þarf á því að halda“

Eiður Smári ræðir um trúna og hvernig hann notar hana – „Ég bið um hjálp þegar ég þarf á því að halda“
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Stórlið bætist í hópinn sem vilja miðjumann City frítt

Stórlið bætist í hópinn sem vilja miðjumann City frítt
433Sport
Í gær

Besta deild kvenna: Breiðablik áfram með fullt hús stiga eftir ferð norður – Öflugur sigur hjá Þrótti

Besta deild kvenna: Breiðablik áfram með fullt hús stiga eftir ferð norður – Öflugur sigur hjá Þrótti
433Sport
Í gær

Skrifaði í sögubækurnar í gær – Sá yngsti til að verða enskur meistari

Skrifaði í sögubækurnar í gær – Sá yngsti til að verða enskur meistari