fbpx
Miðvikudagur 20.maí 2026
Fókus

Sjónvarpsstjarnan óþekkjanleg á nýjum myndum – Hefur hrakað hratt

Kristinn H. Guðnason
Miðvikudaginn 20. maí 2026 17:30

Hasselhoff hefur glímt við líkamleg og andleg veikindi. Skjáskot/Instagram

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Aðdáendur David Hasselhoff eru áhyggjufullir eftir að myndir hafa birst af honum þar sem hann er orðinn gjörsamlega óþekkjanlegur. Hefur hann meðal annars þurft að vera í hjólastól eða ganga með göngugrind. Þá er hann mjög grár, tekinn í andlitinu og veiklulegur.

Hasselhoff var ein skærasta sjónvarpsstjarnan á tíunda áratug síðustu aldar. Fór hann á með aðalhlutverkið í þáttunum Strandverðir (e: Baywatch) ásamt Pamelu Anderson, Eriku Eleniak og fleirum.

En Hasselhoff var fleira til lista lagt. Gaf hann meðal annars út tónlist og náði þó nokkrum vinsældum í Þýskalandi.

Hasselhoff leit mun betur út fyrir aðeins fjórum árum síðan, það er árið 2022. Mynd/Getty

Hasselhoff er nú orðinn 73 ára gamall en lítur út fyrir að vera töluvert eldri. Orsökina má finna í að hann hefur barist við ýmis konar heilsuvandamál á undanförnum árum, bæði líkamleg og andleg.

Um tíma barðist hann við alkóhólisma sem var svo alvarlegur að umgengnisréttur hans við börnin var skertur. Þá hefur hann einnig þurft að undirgangast liðskiptaaðgerðir á bæði hnjám og mjöðmum.

Þrátt fyrir að útlit hans og hreyfingar virðist ekki vera mjög beysnar þá sagði talsmaður hans nýlega að Hasselhoff væri í góðri virkni og væri að ná bata.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Hollywood-elítan sögð hafa yfirgefið Harry og Meghan: „Þau halda aldrei að vandinn sé hjá þeim sjálfum“

Hollywood-elítan sögð hafa yfirgefið Harry og Meghan: „Þau halda aldrei að vandinn sé hjá þeim sjálfum“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Hjartaskurðlæknir varar við mat sem margir borða daglega: „Eyðileggur hjartað hægt og rólega“

Hjartaskurðlæknir varar við mat sem margir borða daglega: „Eyðileggur hjartað hægt og rólega“
Fókus
Fyrir 1 viku

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar um sjónvarp: Hundrað ára eldhress heimsgersemi

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar um sjónvarp: Hundrað ára eldhress heimsgersemi
Fókus
Fyrir 1 viku

Læknar uggandi yfir nýju trendi hjá körlum sem gengur út á að stækka punginn

Læknar uggandi yfir nýju trendi hjá körlum sem gengur út á að stækka punginn