
Morgan Rogers hjá Aston Villa gæti orðið einn eftirsóttasti leikmaðurinn á markaðnum í sumar. Talksport nefnir nokkur stórlið sem eltast við hann.
Arsenal, Chelsea, Manchester United og Paris Saint-Germain eru sögð fylgjast grannt með Rogers, sem er að eiga frábært tímabil fyrir Villa.
Liðið hefur tryggt sér sæti í Meistaradeildinni á ný auk þess að vera í úrslitum Evrópudeildarinnar.
Rogers getur leyst margar stöður framarlega á vellinum, sem heillar hugsanlega kaupendur sömuleiðis mikið.
Villa vill þó halda í Rogers en er til í að sleppa honum ef tilboð upp á 80 milljónir punda berst.