

Leó XIV páfi heldur áfram að slá í gegn. En nú hjá yngstu kynslóðinni, það er eftir að hann tók þátt í vinsælu internet gríni.
Eins og sést í myndbandi sem var tekið í Vatíkaninu á laugardag, 16. maí, má sjá hóp skólabarna gera hinar svokölluðu 6-7 hreyfingar með höndunum. Hinn bandaríski Leó, eða Robert Prevost sem var kjörinn í embætti páfa fyrir rúmu ári síðan, tekur undir með börnunum og gerir hreyfinguna líka.
En hvað er 6-7?
6-7 er frasi sem hefur orðið vinsæll á samfélagsmiðlum, einkum á TikTok. Uppruninn er óljós en sumir telja hann vera kominn frá laginu „Doot Doot (6-7)“ eftir rapparann Skrilla. Þá var körfuboltamaðurinn LaMelo Ball tengdur við frasann, en hann er 6 fet og 7 tommur á hæð. Það var í stuttu myndbandi með Ball sem ungur drengur sést gera hina frægu hreyfingu, það er að hreyfa hendurnar upp og niður, þá sömu og páfi gerði á laugardaginn.
Hver sem uppruninn er þá er frasinn 6-7 rækilega búinn að festa sig í sessi, einkum hjá yngri kynslóðinni. Sú eldri reynir að elta við mismikinn fögnuð þeirra yngri. Þó að margir hinna eldri falli flatir í augum barnanna með því að reyna við 6-7 þá tókst hinum sjötuga Leó prýðilega vel að heilla börnin.