

Þættirnir voru sýndir á árunum 1984 til 1992 og hlutu þeir fjölda verðlauna, þar á meðal Primetime Emmy-verðlaun árið 1989. Pintauro lék í alls 196 þáttum en með önnur helstu hlutverk fóru til dæmis Tony Danza og Alyssa Milano.
Í viðtali við Fox News segir Pintauro að margir misskilji hvernig greiðslur fyrir endursýningar virka og gerðu ráð fyrir að leikarar úr vinsælum sjónvarpsþáttum væru fjárhagslega öruggir til lífstíðar.
„Fólk heldur alltaf að ef það þekkir þig úr sjónvarpi, þá sértu ríkur að eilífu en þannig virkar þetta bara alls ekki,” segir hann.
Pintauro bendir á að samningar sem gerðir voru í tengslum við sjónvarpsþætti á níunda áratugnum hefðu verið allt öðruvísi en þeir sem tíðkast í dag. Þá hafi hvorki verið gert ráð fyrir tekjum af DVD-útgáfum né sífelldum streymisveitum og endursýningum.
Að sögn leikarans fær hann sífellt lægri greiðslur eftir því sem serían er seld oftar áfram.
„Fyrsta þáttaröðin hefur verið keypt svo oft að ég fæ um fimm til sex sent fyrir hvern þátt,“ segir hann og bætir við að sjónvarpsstöðvar og streymisveitur geti síðan sýnt þættina ótakmarkað án frekari greiðslna til hans.
Pintauro sagði þó að tekjurnar á sínum tíma hefðu nýst vel, meðal annars til að greiða skólagjöld við Stanford University þar sem hann lauk námi í leiklist.
Leikarinn sagði einnig að hann skammaðist sín ekki fyrir að vinna hefðbundið starf samhliða leiklistinni. Hann hafi valið Amazon Flex vegna þess að starfið byði upp á sveigjanleika sem hentaði vel með prufutökum og öðrum verkefnum í skemmtanabransanum.
Í apríl sagði Pintauro frá starfinu á Instagram þar sem hann greindi frá því að hafa afhent 38 pakka á einum degi. Þar skrifaði hann meðal annars að það væri engin skömm í því að halda sér gangandi og vinna venjulega og heiðarlega vinnu.