fbpx
Þriðjudagur 19.maí 2026
Fréttir

Viðbrögð við kosningum í borginni: Gleði og svekkelsi, buxur Ólafs vekja athygli og hvað með næstu kosningar?

Ragna Gestsdóttir
Sunnudaginn 17. maí 2026 11:45

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samfélagsmiðlar eru að vakna til lífsins eftir langa og spennandi kosningavöku sveitarstjórnarkosninga. Ljóst er að sumir eru kampakátir með úrslitin meðan aðrir þurfa að sleikja sárin. 

„Við erum ofsalega kát og þakklát og enn þá að ná okkur niður á jörðina eftir gærkvöldið,“ segir Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, í Sprengisandi nú í morgun. Segist hún vilja funda með oddvitum annarra flokka strax í vikunni til að mynda meirihluta. Engar formlegar viðræður eru hafnar en eftir afgerandi sigur flokksins í borginni, 32,5% atkvæða og níu menn kjörna, getur flokkurinn myndað tveggja flokka meirihluta með Miðflokknum eða þriggja flokka meirihluta með Framsókn og Viðreisn.

„Þetta verður svolítið að eiga sinn gang en auðvitað fara samtölin fram núna á næstu dögum. Við þurfum bara að sjá hvað það tekur langan tíma að átta sig á hvoru megin við teljum okkur geta gert borgarbúum meira gagn,“ segir Hildur í samtali við mbl.is.

„Miðflokkurinn er að vinna stórsigur hlutfallslega og hefur fimmfaldað fylgið sitt í borginni,“ segir Ari Edwald oddviti Miðflokksins, sem er sáttur með úrslitin.

„Ég er drullusvekktur,“ segir Pétur Marteinsson oddviti Samfylkingarinnar. „Það hefur ýmislegt gengið á á kjörtímabilinu og undanfarnar vikur. Mér finnst spjótið standa á Samfylkingunni sem þessum flokki sem er búinn að vera við völd lengi. Það hefur verið máluð sú mynd að það er allt ómögulegt og í rúst í Reykjavík.“

Egill Helgason fjölmiðlamaður segir niðurstöður sveitastjórnarkosninga sýna að hveitibrauðsdögum ríkisstjórnarinnar sé lokið.

„Jæja, þá eru hveitibrauðsdagar ríkisstjórnarinar endanlega búnir og við ramman reip að draga hjá henni eins og reyndar ríkisstjórnum víðast hvar. Það er eitt einkenni á samtíma okkar. Nú er ESB atkvæðagreiðslan framundan og það verður torsótt fyrir hana (ég hef reyndar talið að sé fljótfærni að efna til hennar). Nú virðist einboðið að Sjálfstæðisflokkurinn og Miðflokkurinn myndi meirihluta í borgarstjórninni í Reykjavík enda langmestur málafnalegur samhljómur þar á milli. Geta svo boðið Framsókn með ef þau vilja,“ segir Egill í færslu á Facebook og bætir við að hann fagni smá sigri Búlgaríu í Eurovision.

„Hrikalegt ef öfgaflokkur eins og Miðflokkurinn komist að,“ segir Elísabet Jökulsdóttir rithöfundur við færslu Egils.

Líf Magneudóttir, sem er borgarfulltrúi Vinstrisins er þakklát og sátt, og óskar mótframbjóðendum til hamingju. Fyrsta verk hennar heima fyrir er að tæma þvottakörfuna:

„Kæru vinir. Við í Vinstrinu náðum inn tveimur borgarfulltrúum. Auðvitað hefðum við viljað ná þriðja og fjórða manni en svona fór sú sjóferð. Vissulega súrt en áfram gakk!

Eftir lítinn svefn vaknaði ég samt þakklát og sátt. Ég er þakklát öllum ykkur sem studduð okkur með atkvæði ykkar, úthlaupum, uppáhellingum og margvíslegum og fjölbreyttum framlögum. Ég sendi ykkur öllum koss út í kosmósið. Takk fyrir að hafa trú á Vinstrinu og takk fyrir að treysta okkur Sönnu að fara fyrir róttækri félagshyggju og umhverfisvernd í borgarstjórn. Við munum halda okkar striki og ekki valda ykkur vonbrigðum!

Meðframbjóðendum mínum í öðrum flokkum óska ég til hamingju. Þið megið alltaf leita til mín fyrir góð ráð og hvernig maður klífur þessa þangfjöru sem borgamálin geta stundum verið.  Næst á dagskrá: Tæma þvottakörfuna!“

Stefán Pálsson, sem var þriðji maður á lista Vinstrisins og náði ekki kjöri, var varaborgarfulltrú Vinstri grænna á síðasta kjörtímabili. Hann tekur úrslitin ýta undir að stutt verði í Alþingiskosningar.

„Jæja, svona fór um sjóferð þá. Við höfum í kvöld og nótt horft upp á mikla hægrisveiflu í kosningunum á landsvísu. Sjálfstæðisflokkur er yfirburðasigurvegari kosninganna. Framsókn og Miðflokkur mega vel við una. Við í Vinstrinu í Reykjavík vildum gera betur, en getum þó huggað okkur við að miðað við landssveifluna stóð róttæka vinstrið sig vel. Sameiginlegt fylgi Vinstrisins og Sósíalistaflokksins er öllu meira en hjá VG og Sósíalistaflokki síðast – en Samfylking og aðrir flokkar vinstra megin við miðju ýmist lækkuðu eða guldu afhroð. Þá er að sleikja sárin og byggja sig upp hratt og örugglega. Mig grunar að úrslitin nú ýti undir að styttist í næstu Alþingiskosningar.“

Segist Stefán efast um að kosningar um aðildarviðræður við ESB muni fara fram 29. ágúst næstkomandi. Ljóst er að erfður mánudagur er framundan hjá honum:

„Það er auðvitað hálf-glatað að vakna í borg sem hægrið hefur náð völdum í – en hið raunverulega áhyggjuefni mitt núna er að í tvo mánuði hef ég svarað öllum erindum og verkefnum með: hafðu samband við mig mánudaginn eftir kosningar…

Helga Vala Helgadóttir lögmaður var eins og fleiri óþolinmóð eftir tölum í Reykjavík í nótt. Leggur hún til breytingar til talningu:

„Hugmynd fyrir Reykjavík: 1) kallið til íþróttafélag í fjáröflun til að flýta fyrir talningu. 2) Ekki setja einhverja fyrirfram ákveðna tölu yfir fjölda atkvæða á bakvið fyrstu tölur. Annars bara hress…“

Hvað sem menn hafa að segja um úrslit sveitastjórnakosninganna þá segir Jakob Bjarnar Grétarsson blaðamaður á Sýn að ljóst sé að ný stjarna sé fædd:

„Ný kosningastjarna er fædd. Gunnar Sigurðarson er lexíkon um kosningaúrslit á Íslandi. Ólafur Þ Harðarson getur sáttur látið sig hverfa í sinn helga stein.“

Gunnar sem er stjórnmála- og stjórnsýslufræðingur var áberandi í kosningasjónvarpi Sýnar. Ólafur sem var hins vegar í kosningasjónvarpi RÚV í nótt deildi færslu kínverska sendiherrans í Reykjavík sem birt var eftir sjónvarpsfréttir RÚV í gær. Kínamennirnir fylgjast greinilega vel með á Íslandi.“

„Alltaf þegar ég sé Ólaf Harðarson prófessor í stuttbuxum í sjónvarpinu veit ég að tveir hlutir eru að gerast. Í fyrsta lagi er kaldur vetur á Íslandi liðinn, því hann gengur í stuttbuxum alla daga nema á veturna. Í öðru lagi er eitthvað mikilvægt að gerast, eins og sveitarstjórnarkosningarnar hér á morgun, segir sendiherrann He Rulong.

Formaður Rithöfundasambandsins Margrét Tryggvadóttir vekur hins vegar athygli á að Ólafur mætti í kosningavöku RÚV í síðbuxum. „Ólafur í síðbuxum? Er ekki sumar?“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Fjárhagur skiptinema í rúst vegna rispaðrar bílfelgu – „Eins og risastórt íslenskt tröll hafi kramið sálu mína“

Fjárhagur skiptinema í rúst vegna rispaðrar bílfelgu – „Eins og risastórt íslenskt tröll hafi kramið sálu mína“
Fréttir
Í gær

Eigandi Ormsson hefur áhyggjur af íslensku samfélagi: „Tregðan er farin að sjást og merkin eru skýr“

Eigandi Ormsson hefur áhyggjur af íslensku samfélagi: „Tregðan er farin að sjást og merkin eru skýr“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lokatölur úr Reykjavík – Sjálfstæðisflokkurinn tvímælalaus sigurvegari borgarstjórnarkosninganna

Lokatölur úr Reykjavík – Sjálfstæðisflokkurinn tvímælalaus sigurvegari borgarstjórnarkosninganna
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Guðlaugur sigurreifur þó fyrstu tölur liggi ekki fyrir – „Þetta er ekki flókið. Við munum fá góða kosningu“

Guðlaugur sigurreifur þó fyrstu tölur liggi ekki fyrir – „Þetta er ekki flókið. Við munum fá góða kosningu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Bæjarstjóri skaut föstum skotum á Kristrúnu eftir að fyrstu tölur bárust – „Það tókst ekki“

Bæjarstjóri skaut föstum skotum á Kristrúnu eftir að fyrstu tölur bárust – „Það tókst ekki“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Meirihlutinn fallinn miðað við fyrstu tölur í Reykjanesbæ

Meirihlutinn fallinn miðað við fyrstu tölur í Reykjanesbæ