fbpx
Þriðjudagur 19.maí 2026
Fréttir

María nýr stjórnarformaður Sveit

Ragna Gestsdóttir
Sunnudaginn 17. maí 2026 09:55

María með Óskari eiginmanni sínum og Finni, Klöru og Guðfinni á veitingastaðnum þeirra Finnsson í Kringlunni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

María Hjaltadóttir, einn eigenda Finnsson í Kringlunni, hefur verið kjörin nýr formaður stjórnar SVEIT, samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði. Með kjöri hennar tekur við formaður með áratuga reynslu úr íslenskum veitingarekstri, markaðsmálum og þjónustugreinum eins og segir í tilkynningu.

María starfaði um árabil við sölu- og markaðsmál, meðal annars hjá Álafossi, áður en hún kom að rekstri Argentínu steikhúss ásamt eiginmanni sínum, Óskari Finnssyni matreiðslumeistara. Þar öðlaðist hún víðtæka reynslu af rekstri, þjónustu, mannauðsmálum og daglegri stjórnun á einum þekktasta veitingastað landsins á sínum tíma.

Á síðari árum hefur María gegnt lykilhlutverki í uppbyggingu Finnsson í Kringlunni, þar sem hún hefur haft yfirumsjón með bókhaldi, markaðsmálum og rekstrarstjórnun ásamt fjölskyldu sinni. Reksturinn hefur vakið athygli fyrir sterka þjónustumenningu og skýra sýn á íslenskan veitingarekstur.

Einar Bárðarson var ráðinn framkvæmdastjóri samtakanna fyrir tæpu ári síðan og segir hann komu Maríu mikið fagnaðarefni fyrir SVEIT.

„Það er mikill fengur fyrir okkur að fá Maríu bæði í stjórnina og í stöðu formanns. Hún býr yfir mikilli þekkingu bæði hérna heima og erlendis og ég hlakka mikið til samstarfsins við hana,“ segir Einar.

Staða veitingageirans sjaldan jafn þung og nú

María segir að staða íslensks veitingageira hafi sjaldan verið jafn þung og nú. Á síðustu árum hafa rekstrarskilyrði versnað verulega með miklum hækkunum á aðföngum, húsaleigu, launakostnaði og öðrum föstum rekstrarliðum. Samhliða því hafi breytingar í ferðaþjónustu og hægari efnahagsumsvif haft bein áhrif á starfsemi fjölmargra fyrirtækja í greininni.

Á fyrsta fundi nýrrar stjórnar SVEIT var farið yfir stöðu greinarinnar og þær áskoranir sem blasa við fyrirtækjum á veitingamarkaði. Þar var meðal annars rætt um mikilvægi þess að efla sameiginlega hagsmunagæslu greinarinnar og tryggja að rödd veitingamanna heyrist skýrt í samfélagsumræðunni. María segir mikilvægt að samtök eins og SVEIT haldi áfram að vera sterk og sjálfstæð rödd fyrir íslenska veitingamenn.

„Við þurfum að standa saman sem grein. Veitingastaðir eru mikilvægur hluti af íslensku atvinnulífi, menningu og ferðaþjónustu. Það er mikilvægt að rödd okkar heyrist skýrt þegar kemur að rekstrarumhverfi, starfsfólki og framtíð greinarinnar,“ segir María.

Á sama fundi var Arinbjörn Þórarinsson, einn eigenda og framkvæmdastjóri Greifans, kjörinn gjaldkeri stjórnar SVEIT. Ný stjórn hyggst á næstu vikum funda með stjórnvöldum, Samtökum atvinnulífsins og öðrum lykilaðilum til að kynna stöðu veitingageirans og þær áskoranir sem fyrirtæki í greininni standa frammi fyrir. Aðrir stjórnamenn í stjórn Sveit eru Emil Helgi Lárusson eigandi Serrano, Brynjar Guðjónsson einn eigenda Flatey og Arngrímur Fannar Haraldsson einn eigenda Funky Bhangra og varamaður í stjórn er Björn Árnason eigandi Skúli Craftbar

Ný stjórn hyggst á næstu vikum funda með stjórnvöldum, Samtökum atvinnulífsins og öðrum lykilaðilum til að kynna stöðu veitingageirans og þær áskoranir sem fyrirtæki í greininni standa frammi fyrir.

Samstaða og framtíðarsýn voru leiðarstef fundarins og ljóst að ný stjórn SVEIT ætlar sér að halda áfram öflugri hagsmunabaráttu fyrir íslenskan veitingamarkað.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Fjárhagur skiptinema í rúst vegna rispaðrar bílfelgu – „Eins og risastórt íslenskt tröll hafi kramið sálu mína“

Fjárhagur skiptinema í rúst vegna rispaðrar bílfelgu – „Eins og risastórt íslenskt tröll hafi kramið sálu mína“
Fréttir
Í gær

Eigandi Ormsson hefur áhyggjur af íslensku samfélagi: „Tregðan er farin að sjást og merkin eru skýr“

Eigandi Ormsson hefur áhyggjur af íslensku samfélagi: „Tregðan er farin að sjást og merkin eru skýr“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lokatölur úr Reykjavík – Sjálfstæðisflokkurinn tvímælalaus sigurvegari borgarstjórnarkosninganna

Lokatölur úr Reykjavík – Sjálfstæðisflokkurinn tvímælalaus sigurvegari borgarstjórnarkosninganna
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Guðlaugur sigurreifur þó fyrstu tölur liggi ekki fyrir – „Þetta er ekki flókið. Við munum fá góða kosningu“

Guðlaugur sigurreifur þó fyrstu tölur liggi ekki fyrir – „Þetta er ekki flókið. Við munum fá góða kosningu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Bæjarstjóri skaut föstum skotum á Kristrúnu eftir að fyrstu tölur bárust – „Það tókst ekki“

Bæjarstjóri skaut föstum skotum á Kristrúnu eftir að fyrstu tölur bárust – „Það tókst ekki“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Meirihlutinn fallinn miðað við fyrstu tölur í Reykjanesbæ

Meirihlutinn fallinn miðað við fyrstu tölur í Reykjanesbæ