
Yfirvöld á Maldíveyjum rannsaka nú orsakir slyssins, sem er það mannskæðasta í sögu landsins.
Meðal þeirra sem létust var sjávarlíffræðingurinn og háskólakennarinn Monica Montefalcone ásamt 20 ára dóttur hennar, Giorgia Sommacal. Einnig létust Muriel Oddenino, Gianluca Benedetti og Federico Gualtieri.
Samkvæmt ítölskum fjölmiðlum var Montefalcone virtur fræðimaður við háskólann í Genúa og sérhæfði sig í rannsóknum á vistkerfum sjávar. Gualtieri hafði nýlega útskrifast í sjávarlíffræði og skrifaði lokaritgerð sína um lífríki Maldíveyja. Oddenino starfaði einnig við rannsóknir tengdar háskólanum í Genúa.
Hópurinn hafði lagt af stað í hellaköfun af köfunarbátnum Duke of York í gærmorgun. Köfunin fór fram á um 50 metra dýpi, sem er töluvert dýpra en hefðbundin afþreyingarköfun á Maldíveyjum.
Hópurinn skilaði sér hins vegar ekki aftur upp á yfirborðið og hófst umfangsmikil leit eftir að tilkynnt var um hvarf hópsins síðdegis í gær..
Strandgæsla og varnarsveitir Maldíveyja sendu bæði hraðbáta og flugvélar á vettvang. Fyrsta líkið fannst inni í neðansjávarhelli á um 60 metra dýpi og talið er að hinir kafararnir hafi einnig verið þar inni.
Lögregla hefur ekki staðfest hvað olli slysinu, en nokkrar kenningar eru til rannsóknar, að því er fram kemur í frétt Daily Mail. Meðal annars er talið mögulegt að hópurinn hafi villst inni í hellakerfi vegna slæms skyggnis og erfiðra skilyrða. Gul veðurviðvörun var í gildi á svæðinu og talsverður vindur.
Köfunarsérfræðingar hafa einnig nefnt svokallaða súrefniseitrun sem mögulega skýringu. Slíkt getur gerst þegar loftblanda í köfunarkútum inniheldur of hátt hlutfall súrefnis fyrir það dýpi sem kafað er á. Við slíkar aðstæður geta kafarar orðið ringlaðir, misst áttir eða misst meðvitund.
Yfirvöld rannsaka jafnframt hvort hópurinn hafi fylgt öllum öryggisreglum, meðal annars hvort notuð hafi verið sérstök öryggislína fyrir hellaköfun og hvers vegna enginn leiðsögumaður fylgdi hópnum, eins og lög á Maldíveyjum kveða á um.