

Íslenskar konur vilja gjarnan fá ævintýradrykkinn Svala aftur í verslanir landsins, ef marka má færslu sem birtist í Facebook-hópi að nafni Beauty tips! í gær.
Færslan er nafnlaus en færsluhöfundur segist vera þungaður og dreymi um að svala þorsta sínum með svaladrykknum sem hefur ekki verið framleiddur hér á landi síðan um áramótin árið 2022. Vildi færsluhöfundur kanna hvort fleiri þungaðar konur væru tilbúnar til að skrifa undir áskorun til Vífilfells um að hefja framleiðslu að nýju.
Ekki stóð á svörunum. Konurnar, hvort sem þær eru þungaðar eða ekki, vilja svala.
„Allir vilja Svala aftur! Það er stórfurðulegt að hann hafi hætt“
„Ég get ekki lengur borðað pulsur út af því að það er ekki til svali, það bara bragðast ekkert eins.“
„Ekki ólétt en væri mikið til í hann aftur. Ég skil ekki af hverju það þarf alltaf að hætta með allt sem er gott“
„Vantar svo svala fyrir þynnkuna“
„Það vilja held ég flestir ef ekki allir fá svala aftur“
„Gjörsamlega eina sem bjargaði mér á seinustu meðgöngu og búin að vera að deyja á þessari meðgöngu, langar svo í svala“
„Ekki ólétt en vil samt svala aftur“
„Ólétt og dreymir um jarðarberjasvala og frosinn sítrónusvala.“
„Sakna hans mjög mikið“
„Ég styð FREE SVALI-herferðina heilshugar“
„Ekki ólétt en myndi fremja glæpi til þess að fá svala aftur“
„ÞJÓÐIN VILL FÁ SITT TIL BAKA“
„Hluti af æsku minni hvarf þegar Svali hætti“
Af svörum við færslunni má ráða að nú standi til að hefja formlega undirskriftasöfnun til að endurheimta ævintýradrykkinn sem er greinilega sárt saknað.
Sjá einnig: Svali úr sögunni