

Fyrrum argentínski landsliðsmaðurinn Ezequiel Lavezzi lenti í miklu hneykslismáli eftir ferilslok þegar hann og kærasta hans voru sagðir hafa orðið fyrir fjárkúgun vegna kynlífsmynda og myndbanda. Daily Star fer yfir málið í dag.
Lavezzi, sem lék á sínum tíma með Paris Saint-Germain og Napoli, var á ferlinum þekktur bæði fyrir hæfileika sína innan vallar og litríkt einkalíf utan hans. Stærsta hneykslið kom þó eftir að hann lagði skóna á hilluna árið 2019.

Samkvæmt fréttum fór Lavezzi í ferðalag með brasilísku fyrirsætunni Natalia Borges til eyjunnar Saint Barthélemy í Karíbahafinu á meðan heimsfaraldur geisaði árið 2020. Samband þeirra vakti mikla athygli þar sem Borges var sögð fyrrverandi kærasta náins vinar Lavezzi.
Fyrrverandi kærasta Lavezzi, Yanina Screpante, hélt því fram að samband þeirra hefði hafist á meðan Borges væri enn með vini hans og sakaði Lavezzi um svik.
„Hann laug að vini sínum,“ sagði Screpante í viðtali og bætti við að þetta væri ekki í fyrsta sinn sem Lavezzi tengdist fyrrverandi kærustum vina sinna.

Málið tók svo nýja stefnu þegar argentínski miðillinn La Nacion greindi frá því að parið hefði fengið hótanir frá óþekktum aðila sem sagðist myndu birta viðkvæm myndbönd og myndir af þeim nema greitt yrði fyrir þögn hans.
Samkvæmt fréttinni var krafist um 4.000 punda fyrir hvert efni sem ekki yrði birt á netinu. Lavezzi, sem þénaði áður um tíu milljónir punda á ári hjá Hebei China Fortune í Kína, á að hafa falið lögmönnum sínum að taka málið fyrir.
Heimildarmaður náinn parinu sagði að fjárkúgarinn hefði haft samband við bæði Lavezzi og Borges í gegnum Instagram-reikninga og hótað að birta efnið opinberlega.