fbpx
Sunnudagur 03.maí 2026
Pressan

Fjármálaráðgjafi segir þessi ráð hjálpa til við að lækka skuldirnar

Pressan
Sunnudaginn 3. maí 2026 16:30

Myndin er úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Skuldir geta læðst inn í hversdagslífið eins og óboðinn gestur og breytt fjárhagslegum stöðugleika í áhyggjur og óróleika. Það skiptir ekki máli hvort maður er að glíma við kreditkortaskuldir, námslán eða húsnæðislán, þau eiga það öll sameiginleg að geta stressað okkur og pirrað.

Fjármálaráðgjafinn John Lowe segir að það sé hægt að komast út úr þessum erfiðleikum og skipulag og yfirsýn séu fyrsta skrefið á þeirri leið að sögn miðilsins Imna.

Flokkaðu lánin – Byrjaðu á að koma þér upp skýrri mynd af fjárhagslegum skuldbindingum þínum. Skrifaðu öll lán upp, stór og smá, og greiddu alltaf að minnsta kosti afborgunina af þeim. Síðan skaltu greiða aukalega inn á lánið, sem ber hæstu vextina, því það er skynsamlegast.

Hugsaðu þig vel um áður en þú færð peninga að láni – Ef þú ætlar að taka lán, þá skaltu skoða lánamarkaðinn vel áður. Gættu vel að afskriftum, sérstaklega ef þú ert að kaupa bíl, og veldu stuttan lánstíma.

Náðu stjórn á kreditkortaskuldinni – Ef kreditkortaskuldin er há, þá skaltu borga hana niður eins fljótt og þú getur og um leið draga úr kortanotkuninni með það að markmiði að nánast hætta að nota kreditkort.

Fáðu aðstoð fagfólks – Það eru alltaf til lausnir, líka í verstu tilfellunum. Gjaldþrotaáætlanir og endurskipulagning lána getur verið nauðsynleg og það má aldrei vanmeta ráð frá sérfræðingum að sögn Lowe.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Þessa hluta af kjúklingum á ekki að borða

Þessa hluta af kjúklingum á ekki að borða
Pressan
Í gær

Rússar flýja vígvöllinn – „Það var útilokað að hægt væri að lifa þessa orustu af“

Rússar flýja vígvöllinn – „Það var útilokað að hægt væri að lifa þessa orustu af“
Pressan
Í gær

Hún blekkti alla með englaandlitinu – Óhugnaður á óhugnað ofan

Hún blekkti alla með englaandlitinu – Óhugnaður á óhugnað ofan
Pressan
Í gær

Á að taka D-vítamín á morgnana eða kvöldin?

Á að taka D-vítamín á morgnana eða kvöldin?