
Xavi, fyrrum stjóri Barcelona, segir að það hefði verið hægt að fá Lionel Messi aftur tl félagsins á meðan hann var þar. Forseti félagsins, Joan Laporta, hafi þó ekki viljað það.
Xavi, sem er auðvitað fyrrum leikmaður Börsunga og goðsögn sem slík, var við stjórnvölinn frá 2021 til 2024. Vildi hann fá nokkrar fyrrum stjörnur aftur til félagsins.
„Sem stjóri Barcelona fékk ég Dani Alves til baka og reyndi að fá Neymar, Pedro og Messi,“ segir Xavi.
Messi yfirgaf Barcelona sumarið 2021 og gekk í raðir Paris Saint-Germain. Hann varð aftur samningslaus árið 2023 og var orðaður við endurkomu til Katalóníu, en fór til Inter Miami vestan hafs, þar sem hann er enn.
„Það var ekki hægt að fá Pedro og Neymar vegna fjárhagsins. Varðandi Messi, þá vildi Laporta ekki fá hann aftur.“