
Ástæðan er auðvitað staða mála í Miðausturlöndum en það virðist ómögulegt að lesa nokkuð í hana eða spá hvað muni gerast á næstunni þar.
Norski miðillinn VG leitaði til Hans Jørgen Elnæs, sérfræðings í málefnum tengdum fluggeiranum, og spurði hvort ástæða sé til að hafa áhyggjur, hvort flugferðum verði jafnvel aflýst í sumar.
Hann hvatti fólk til að halda ró sinni og sagðist ekki hafa miklar áhyggjur af stöðu mála í Evrópu. Ástæðan sé að sumarið skipti flugfélögin svo miklu máli, því það standi undir stórum hluta innkomu þeirra, og þau muni gera allt sem í þeirra valdi stendur til að koma farþegum á milli staða.
Hann sagði þó að þeir sem hafi í hyggju eða hafi jafnvel nú þegar keypt sér ferðir til framandi staða geti lent í vanda. Blanda fárra flugferða og minni samkeppni á leiðunum gæti leitt til aflýsinga og jafnvel flugöngþveitis.
Hann sagði þetta eiga sérstaklega við um Suðaustur-Asíu. Sum lönd þar standi illa að vígi og það sama eigi við um sum lönd í Afríku. Það sé rétt fyrir fólk að hafa þetta í huga.
Hvað varðar verð á flugmiðum sagði hann að fólk þurfi ekki að reikna með að það lækki á næstunni. Hann ráðleggur fólki að kaupa sumarferðina tímanlega, annars eigi það á hættu að hún verði enn dýrari.