
Wayne Rooney telur að Arsenal muni hafa betur gegn Manchester City í baráttunni um Englandsmeistaratitilinn.
Arsenal fór á topp deildarinnar um helgina með sigri á Newcastle, en City á þó leik til góða.
Rooney segir endurkomu Bukayo Saka úr meiðslum gríðarlega mikilvæga fyrir lið Mikel Arteta og er hann á því að City eigi snúnari dagskrá eftir. Telur hann jafnframt að Skytturnar vinni rest.
„Að fá Saka aftur er gríðarlega stórt fyrir Arsenal. Leikmenn liðsins bera mikið traust til hans,“ segir Rooney.
Það er nóg að gera hjá Arsenal, sem er einnig á leið í undanúrslitaeinvígi við Atletico Madrid í Meistaradeildinni í vikunni.