

Bernardo Silva er eftirsóttur fyrir komandi félagaskiptaglugga, en fjöldi stórliða fylgist nú með stöðu miðjumannsins hjá Manchester City.
Silva fer frítt frá City í sumar þegar samningur hans er á enda.
Samkvæmt enskum miðlum hafa Juventus, Barcelona, Paris Saint-Germain og Al-Hilal öll áhuga á að fá portúgalska landsliðsmanninn í sínar raðir.
Silva, sem er 31 árs, hefur verið einn mikilvægasti leikmaður City undanfarin ár og átt stóran þátt í velgengni félagsins undir stjórn Pep Guardiola.
Bernardo hefur því marga valkosti í sumar en honum hefur lengi dreymt um að spila fyrir Barcelona.