
Marcus Rashford gæti snúið aftur í ensku úrvalsdeildina í sumar ef Barcelona ákveður að nýta ekki kauprétt sinn á leikmanninum.
Rashford gekk til liðs við Barcelona á láni frá Manchester United síðasta sumar og hefur náð að blása lífi í feril sinn á ný. Hann hefur skorað 13 mörk í 45 leikjum. Þó kemur hann gjarnan inn af bekknum.
Þrátt fyrir fínan árangur er óvissa um framtíð hans hjá félaginu, sem er sagt hikandi við að greiða 26 milljónir punda fyrir framherjann, en það er upphæðin sem félagið hefur rétt á að kaupa hann á.
Samkvæmt spænska miðlinum Sport hefur Tottenham áhuga á að fá Rashford, en sóknarlína liðsins hefur verið þjökuð af meiðslum í vetur.
Það veltur þó á því hvort Tottenham heldur sér í úrvalsdeildinni, en lið Roberto De Zerbi er sem stendur í 18. sæti, tveimur stigum á eftir West Ham þegar fjórar umferðir eru eftir.