

Antonio Conte, þjálfari Napoli, virðist hafa kveikt enn frekar í deilu sinni við Romelu Lukaku með ummælum eftir leik liðsins í vikunni.
Lukaku komst í fréttirnar í síðasta mánuði þegar hann mætti ekki á æfingu eftir að hafa dregið sig úr landsliðsverkefni Belgíu vegna meiðsla. Napoli sektaði framherjann fyrir fjarveruna og gaf út harðorða yfirlýsingu.
Belginn sneri aftur til Napólí fyrr í vikunni og talið var að hann hefði fundað með bæði stjórnendum félagsins og Conte til að slétta úr ágreiningnum.
Conte sagði þó eftir 4-0 sigur Napoli að svo hefði ekki verið. „Ég hef ekki fengið tækifæri til að tala við hann,“ sagði Conte.
„Hann kom á æfingasvæðið en enginn bankaði á dyrnar hjá mér. Það olli mér vonbrigðum.“
Þjálfarinn sagðist hafa búist við að minnsta kosti kveðju eða skilaboðum frá leikmanninum.
Ummælin hafa aukið vangaveltur um framtíð Lukaku hjá Napoli og ljóst virðist að samband hans við Conte sé áfram stirt.