
Loki Kristjánsson varð í gær yngsti leikmaður í sögu Vals í efstu deild karla þegar hann kom inn á í 3-0 sigrinum gegn FH, aðeins 15 ára og 13 daga gamall.
Með því sló Loki rúmlega þrjátíu ára gamalt met sem enginn annar en Eiður Smári Guðjohnsen átti eftir að hann kom inn á í leik árið 1994 þá 15 ára og 250 daga gamall.

Loki er uppalinn Valsari sem hefur staðið sig afar vel í yngri flokkum félagsins. Vakti hann sérstaka athygli síðasta sumar fyrir flotta frammistöðu með 2. flokki og þá æfði hann með danska félaginu FC Midtjylland.
Loki skrifaði síðan undir sinn fyrsta samning við Val fyrir nokkrum vikum. Við það tækifæri sagði Gareth Owen yfirmaður knattspyrnumála hjá Val þetta:
„Við erum afar ánægð með að Loki sjái framtíð sína hjá okkur í Val. Hann er mjög spennandi leikmaður með frábæran vinstri fót og getur leyst margar stöður á vellinum. Reynslan hjá FC Midtjylland hefur greinilega haft góð áhrif á þroska hans og hungur til að ná árangri. Hann hefur alla burði til að ná langt og við hlökkum til að fylgjast með næstu skrefum Loka hjá félaginu.“