

Stuðningsmenn Víkings kveiktu í tvígang á blysum þegar liðið vann 3-2 sigur á Stjörnunni í Bestu deild karla í gær.
Blysin fóru ekki vel í alla því samkvæmt Innkastinu á Fótbolta.net gekk einn sjálfboðaliði Víkings af vettvangi.
Eftir leik í fyrstu umferð fékk Víkingur væna sekt fyrir að kveikja á blysum í stúkunni í 1-1 jafntefli gegn Breiðablik.
Víkingar voru ósáttir með sektina frá KSÍ og töluðu um reykblys sem væru skaðlaus. Í stað þess að kveikja á þeim innan vallar var nú kveikt á þeim fyrir utan leikvanginn og reykurinn lagði svo yfir völlinn.

„Svo gerist þetta aftur eftir að þeir jafna leikinn,“ sagði Valur Gunnarsson í innkastinu á Fótbolta.net. en þá virðist einhver hafa pirrað sig.
Valur sagður svo frá atvikinu þegar sjálfboðaliði gafst upp.
„Við erum í þannig deild að við förum langt á sjálfboðaliðum, ég elska þegar menn taka starfinu alvarlega. Gæslumaður Víkings fór heim eftir seinna blysið, hann lét ekki bjóða sér þetta og fór heim.“