fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
433Sport

Frambjóðandi Miðflokksins baunar á meirihlutann í borginni vegna framkomu hans við þennan hóp – „Hafa ítrekað mætt dónaskap og valdahroka“

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 22. apríl 2026 13:56

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lárus Blöndal Sigurðsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri og formaður Vals sem skipar 3. sæti á lista Miðflokksins í Reykjavík, gagnrýnir samskipti Reykjavíkurborgar við íþróttafélög í borginni harðlega.

Lárus bendir á mikla fjölgun iðkenda íþróttafélaganna í borginni á síðustu árum. Því fagnar hann en segir að þjónusta borgarinnar við félögin séu ekki í takt við hana.

„En þessi aukning hefur skapað aukið álag á félögin, bæði starfsmenn og sjálfboðaliða sem ekki sé talað um mannvirkin. Á sama tíma er fjárhagsstaða félaganna almennt mjög slæm og því þarf að fara í endurskoðun á þjónustuhlutverki þeirra með tilliti til breyttra aðstæðna,“ skrifar Lárus í grein sem birtist á Vísi.

„Það er sorglegt en staðreynd að núverandi meirihluti í Reykjavíkurborg virðist vera í nöp við íþróttafélögin í borginni. Ítrekað hafa félögin verið svikin um loforð um uppbyggingu á félagssvæðum, jafnvel þó að undirritaðir samningar um slíka uppbyggingu liggi fyrir. Þá hafa samskipti borgarinnar við félögin verið slæm. Illa er svarað og seint og lítið um aðgerðir eða efndir í þeim málefnum sem félögin eru að glíma við.“

Lárus segir þá ótækt að ætlast til þess að íþróttafélögin geti sinnt félagsþjónustu við börn og unglinga, án þess að samráð sé haft við skóla og borgaryfirvöld.

„Í dag er ekkert samráð haft við félögin í tengslum við frístund og skóla. Því þarf að kippa í liðinn undir eins. Til dæmis neitar Reykjavíkurborg að starfsmenn frístundarheimila labbi eða fari í rútu með krökkunum á æfingar, sem ætti að vera hluti af þeirra starfi. Kerfið á að virka alla leið.“

Segur Lárus þau sem að íþróttafélögunum koma orðin þreytt á borginni.

„Staðreyndin er sú að forsvarsmenn, sjálfboðaliðar og starfsmenn íþróttafélaganna eru að gefast upp. Það er gríðarleg óánægja innan íþróttahreyfingarinnar með framkomu borgarinnar í samskiptum við félögin. Íþróttafélögin hafa lagt mikinn metnað í að sinna starfi sínu eins og vel og þau mögulega geta, en hafa, því miður, ítrekað mætt dónaskap og valdahroka frá borgaryfirvöldum,“ skrifar hann og segir enn fremur að Miðflokkurinn ætli sér að ganga í þessi mál, fái þau kosningu til.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Guardiola lagði inn gott orð

Guardiola lagði inn gott orð
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Skjót viðbrögð hjá lækni björguðu lífi hennar – Missti fóstur og var með svæsna blóðeitrun

Skjót viðbrögð hjá lækni björguðu lífi hennar – Missti fóstur og var með svæsna blóðeitrun
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Xavi segir ástæðuna fyrir því að Messi sneri ekki aftur afar einfalda

Xavi segir ástæðuna fyrir því að Messi sneri ekki aftur afar einfalda
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Tjáir sig um orðrómana fyrir leikinn gegn Arsenal

Tjáir sig um orðrómana fyrir leikinn gegn Arsenal
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Benedikt ósáttur við framkomu Garðbæinga – „Erum ekki að fara að henda fjórum milljónum í þetta“

Benedikt ósáttur við framkomu Garðbæinga – „Erum ekki að fara að henda fjórum milljónum í þetta“
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Til í að bjóða markvörð til Liverpool á móti

Til í að bjóða markvörð til Liverpool á móti