

Cristiano Ronaldo gæti á næstu árum fengið einstakt tækifæri til að spila með syni sínum, Cristiano Ronaldo Jr, ef áform Al-Nassr ganga eftir.
Samkvæmt fréttum í Sádi-Arabíu eru forráðamenn félagsins að íhuga að flýta framgangi hins 15 ára gamla Ronaldo Jr. og gefa honum tækifæri til að æfa með aðalliði félagsins á tímabilinu 2026-27.
Ronaldo, sem er orðinn 41 árs, hefur lengi lýst yfir vilja til að spila atvinnumennsku með syni sínum áður en hann leggur skóna á hilluna. Hann viðurkennir þó að tíminn sé að renna út.
„Mig langar til þess, en þetta er meira í hans höndum en mínum. Árin líða og það kemur að því að ég hætti,“ sagði Ronaldo fyrr á árinu.
Ronaldo Jr. hefur fylgt föður sínum á ferlinum og spilaði meðal annars í unglingaliðum Manchester United og landsliði Portúgals áður en hann flutti til Sádi-Arabíu árið 2023.
Hann leikur nú í akademíu Al-Nassr og þykir efnilegur sóknarmaður sem getur leikið bæði á köntum og í fremstu víglínu.
Ef af verður gæti það orðið sögulegt augnablik í knattspyrnunni.