

Tímaritið People hefur valið fallegustu forsíðustúlkuna fyrir árið 2026 og það er leikkonan Anne Hathaway sem hreppir titilinn.
Hathaway varð heimsþekkt árið 2001 í kvikmyndinni The Princess Diaries og í kjölfarið fylgdu myndir eins og Brokeback Mountain, Becoming Jane, Alice in Wonderland og Les Misérables, sú síðasttalda skilaði henni Óskarsverðlaununum eftirsóttu.
Hathaway er orðin 41 árs og í ár koma fimm myndir hennar í sýningar, þar á meðal langþráð framhaldsmynd, The Devil Wears Prada 2, sem kemur í sýningar í byrjun maí.
Hathaway þakkar velgengni sína að mestu eiginmanninum, skartgripahönnuðinum og kvikmyndaframleiðandanum Adam Shulman og sonum þeirra, Jonathan, tíu ára, og Jack, sex ára, þakkar hún fyrir að hafa haldið henni á jörðinni að mestu leyti.
Hathaway segist hafa ákveðið að verða leikkona þegar hún var þriggja ára og fylgdist með móður sinni leika Evu Perón í Evitu.

Í forsíðuviðtali People er hún spurð hvernig hún skilgreini fegurð.
Hvaða eiginleikar finnst þér fallegir í kvenkyns vináttuböndum?
„Húmor. Ég elska að hlæja og ég elska fólk sem leitar að gríninu í aðstæðum. Þú vilt fólk sem þú getur fagnað sigrunum með og þú vilt fólk sem þú getur hlegið með í gegnum niðursveiflurnar. Ég leita líka að fólki sem er nærgætið. Veistu hvað annað ég kann að meta við vin? Einhvern sem segir þér frá því þegar þú ert með birkifræ í tönnunum.“