
Ísland og England mætast í undankeppni HM á Laugardalsvelli á morgun.
A-landslið kvenna hefur mætt Englandi ellefu sinnum, síðast 7. mars í Nottingham þar sem England vann 2-0 í undankeppni HM 2027.
Liðin mættust í fyrsta sinn þann 17. maí 1992 í undankeppni EM 1993. Sá leikur endaði með 4-0 sigri Englands. Seinni leikur liðanna í undankeppninni fór svo fram á Kópavogsvelli 19. júlí sama ár. Ragna Lóa Stefánsdóttir skoraði mark Íslands í 1-2 tapi.
Næstu viðureignir þjóðanna voru í umspili fyrir EM 1995 þar sem leikið var heima og að heiman. Fyrri leikur liðanna fór fram á Laugardalsvelli þar sem Margrét Ólafsdóttir skoraði mark Íslands í 1-2 tapi. England vann seinni leikinn, einnig 2-1, og þar var það Ásta B. Gunnlaugsdóttir sem skoraði mark Íslands.
Átta ár liðu þangað til að þjóðirnar mættust aftur, þá í umspili fyrir HM 2003. Fyrri leiknum lauk með 2-2 jafntefli á Laugardalsvelli þar sem Olga Færseth og Erla Hendriksdóttir skoruðu mörkin. Seinni leiknum lauk með 1-0 sigri Englands.
Þvínæst tóku við fjórir vináttuleikir milli þjóðanna á sex árum. England vann þrjá þeirra, 1-0 árið 2004 og 2006 og 4-0 árið 2007. Eini sigur Íslands gegn Englandi kom svo í vináttuleik 16. júlí 2009 þar sem Hólmfríður Magnúsdóttir og Margrét Lára Viðarsdóttir skoruðu mörk Íslands í 2-0 sigri.
Í þessum ellefu leikjum hefur England unnið tíu sinnum og Ísland einu sinni, en aldrei hefur leikur á milli þjóðanna endað með jafntefli.
Liðin mættast á Laugardalsvelli á morgun kl. 16:30 og er hægt að nálgast miðasölu leiksins á miðasöluvef KSÍ.