fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Sturluð dramatík í Bæjaralandi þegar Real féll úr leik – Rólegt í London þar sem Arsenal fór áfram

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 15. apríl 2026 20:56

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bayern Munich tryggði sér sæti í undanúrslitum Meistaradeildarinnar eftir dramatískan 4-3 sigur gegn Real Madrid, þar sem samanlagt 6-4 sigur dugði Þjóðverjunum.

Leikurinn byrjaði með látum þegar Arda Güler skoraði strax á fyrstu mínútu og bætti síðar við öðru marki. Harry Kane og Aleksandar Pavlović skoruðu fyrir Bayern en Kylian Mbappé kom Real aftur yfir fyrir hlé.

Í seinni hálfleik var spennan gríðarleg og þegar Eduardo Camavinga fékk rautt spjald undir lokin nýtti Bayern sér liðsmuninn. Luis Díaz skoraði á 89. mínútu og sendi heimamenn áfram. Rauða spjaldið var umdeilt en Camavinga fékk tvö gul spjöld eftir að hafa komið inn sem varamaður, það seinna fyrir að tefja leikinn.

Það var svo í uppbótartíma sem Michael Olisie skoraði fjórða og síðasta mark leiksins fyrir Bayern og skaut liðinu áfram.

Í London tryggði Arsenal sér einnig sæti í undanúrslitum eftir 0-0 jafntefli gegn Sporting CP. Arsenal vann einvígið 1-0 samanlagt eftir sigur í fyrri leiknum.

Leikir kvöldsins buðu upp á mikla dramatík og ljóst er að undanúrslitin verða afar spennandi.

Arsenal og Atletico Madrid mætast í undanúrslitum og einnig Bayern og PSG.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki
433Sport
Í gær

Segir ákvörðun sína ekki tengjast öðru félagi á nokkurn hátt

Segir ákvörðun sína ekki tengjast öðru félagi á nokkurn hátt
433Sport
Fyrir 2 dögum

Verður rekinn og fjórir eru orðaðir við starfið

Verður rekinn og fjórir eru orðaðir við starfið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Gamla konan á Ítalíu horfir til Englands

Gamla konan á Ítalíu horfir til Englands