
Noah Sadiki hefur vakið mikla athygli með Sunderland í ensku úrvalsdeildinn á leiktíðinni og er hann orðaður við stærri félög.
Manchester United ku vera mjög áhugasamt um þennan 21 árs gamla miðjumann og gæti reynt að kaupa hann í sumar, sérstaklega þar sem Casemiro er á förum og Manuel Ugarte hefur ekki sannfært.
Chelsea er einnig sagt fylgjast grannt með Sadiki og sér hann jafnvel sem arftaka Enzo Fernandez, sem hefur verið orðaður við brottför.
Fleiri félög eru sögð horfa til Sadiki, sem kom frá Union SG í Belgíu í fyrra.