fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Stjarna Barcelona gæti fengið refsingu eftir gærkvöldið

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 15. apríl 2026 13:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Raphinha gæti átt yfir höfði sér refsingu vegna gjörða sinn eftir tap Barcelona gegn Atletico Madrid í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í gær.

Barcelona var 0-2 undir eftir fyrri leik einvígisins en náði að jafna í seinni leiknum með mörkum frá Lamine Yamal og Ferran Torres.

Ademola Lookman skoraði hins vegar sigurmark Atletico sem tryggði þeim sæti í undanúrslitum, hvar liðið mætir Arsenal eða Sporting.

Eftir leikinn var Raphinha afar ósáttur og sakaði dómarann Clement Turpin um að hafa rænt Barcelona sigrinum, meðal annars vegna þess að liðið fékk ekki vítaspyrnu þegar Koke braut á Dani Olmo.

Hann hraunaði einnig yfir dómarana vegna fleiri atvika og samkvæmt erlendum miðlum gæti aganefnd UEFA refsað honum.

Þess má geta að Raphinha var einnig með stæla við stuðningsmenn Atletico eftir leik og gaf í skyn að félagið myndi detta úr leik í næstu umferð.

Börsungar misstu mann af velli með rautt spjald í báðum leikjunum og eru afar ósáttir við dómgæsluna. Kvartaði félagið til UEFA vegna dómgæslunnar í fyrri leiknum og hyggst gera það sama eftir leikinn í gær.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki
433Sport
Í gær

Segir ákvörðun sína ekki tengjast öðru félagi á nokkurn hátt

Segir ákvörðun sína ekki tengjast öðru félagi á nokkurn hátt
433Sport
Fyrir 2 dögum

Verður rekinn og fjórir eru orðaðir við starfið

Verður rekinn og fjórir eru orðaðir við starfið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Gamla konan á Ítalíu horfir til Englands

Gamla konan á Ítalíu horfir til Englands