
Harry Maguire missir af næsta leik Manchester United gegn Chelsea eftir að enska knattspyrnusambandið lengdi leikbann hans.
Maguire fékk aukaleik í bann vegna rifrildis við fjórða dómara í kjölfar rauða spjaldsins sem hann fékk gegn Bournemouth fyrir tæpum mánuði síðan. Hann var í banni gegn Leeds í tapi á mánudag.
United er í vandræðum í vörninni fyrir leikinn gegn Chelsea, en Lisandro Martinez fékk rautt spjald gegn Leeds og er því einnig í banni.
Félagið getur áfrýjað banni Maguire.