fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Skuggaleg hækkun í Bandaríkjunum – Hækka um 775 prósent áður en ferðamenn mæta

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 15. apríl 2026 19:00

Sumir þurfa að reiða fram háa tryggingu áður en farið er til Bandaríkjanna.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mikil reiði hefur blossað upp meðal knattspyrnuáhugamanna og stjórnmálamanna í Bandaríkjunum eftir fregnir af mikilli hækkun á lestarmiðum í tengslum við HM í sumar.

Samkvæmt f´rettum gæti ferð milli New York og MetLife Stadium hækkað úr um 13 dollurum í yfir 100 dollara fram og til baka. Völlurinn mun hýsa átta leiki á mótinu, þar á meðal úrslitaleikinn.

Áætlað er að hækkunin nemi um 775 prósentum, sem hefur vakið mikla gagnrýni á FIFA. Samgöngufyrirtækið NJ Transit segir verð ekki endanlega ákveðið, en gagnrýnendur telja að kostnaður sé færður yfir á almenning.

Ríkisstjóri New Jersey, Mikie Sherrill, segir mikilvægt að skattgreiðendur beri ekki kostnaðinn af mótinu. Hins vegar hafa aðrir stjórnmálamenn gagnrýnt fyrirkomulagið harðlega.

Öldungadeildarþingmaðurinn Chuck Schumer segir ósanngjarnt að íbúar og ferðamenn þurfi að greiða slíkan kostnað á meðan FIFA hagnist um milljarða dala.

Málið hefur því aukið umræðu um kostnað og skipulag HM í Bandaríkjunum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki
433Sport
Í gær

Segir ákvörðun sína ekki tengjast öðru félagi á nokkurn hátt

Segir ákvörðun sína ekki tengjast öðru félagi á nokkurn hátt
433Sport
Fyrir 2 dögum

Verður rekinn og fjórir eru orðaðir við starfið

Verður rekinn og fjórir eru orðaðir við starfið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Gamla konan á Ítalíu horfir til Englands

Gamla konan á Ítalíu horfir til Englands