fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Myndband af handtöku skömmu fyrir flugtak vekur athygli

433
Miðvikudaginn 15. apríl 2026 11:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Argentínski varnarmaðurinn Emiliano Endrizzi var handtekinn eftir að hafa að verið með sprengjuhótanir um borð í flugi liðs síns Gimnasia y Esgrima de Jujuy.

Atvikið átti sér stað þegar liðið var á leið til Buenos Aires fyrir leik gegn Agropecuario. Flugvélin var rýmd og sprengjusérfræðingar kallaðir til, sem olli röskun á flugumferð og seinkunum fyrir yfir 1.200 farþega.

Samkvæmt fréttum er Endrizzi sagður hafa hrópað „sprengja“ áður en vélin átti að taka á loft, og vitni segja að hann hafi einnig fullyrt að farþegar myndu springa.

Flugfélagið Flybondi hefur fordæmt atvikið og segir að öryggisferlar hafi verið virkjaðir tafarlaust, á meðan lögregla tók við rannsókn málsins.

Forráðamenn Gimnasia y Esgrima de Jujuy segja að verið sé að meta stöðuna og að hugsanlegt sé að samningi leikmannsins verði rift.

Endrizzi, sem hefur leikið yfir 300 leiki á ferlinum, er nú í haldi lögreglu og framtíð hans á knattspyrnuvellinum í mikilli óvissu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki
433Sport
Í gær

Segir ákvörðun sína ekki tengjast öðru félagi á nokkurn hátt

Segir ákvörðun sína ekki tengjast öðru félagi á nokkurn hátt
433Sport
Fyrir 2 dögum

Verður rekinn og fjórir eru orðaðir við starfið

Verður rekinn og fjórir eru orðaðir við starfið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Gamla konan á Ítalíu horfir til Englands

Gamla konan á Ítalíu horfir til Englands