fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Talinn henta Liverpool vel en United hefur einnig áhuga – Þetta er verðmiðinn í sumar

Helgi Fannar Sigurðsson
Þriðjudaginn 14. apríl 2026 19:00

Angelo Stiller Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Liverpool hefur sett miðjumanninn Angelo Stiller á óskalista sinn fyrir sumarið, samkvæmt Football Insider.

Stiller, sem leikur með Stuttgart í Þýskalandi, er talinn líklegur til að yfirgefa félagið á næstu mánuðum og gæti kostað um 60 milljónir punda.

Þessi 25 ára gamli Þjóðverji hefur vakið athygli fyrir frammistöðu sína í heimalandinu og er oft líkt við Toni Kroos vegna sendingagetu og leikskilnings. Hann spilar yfirleitt sem djúpur miðjumaður og stýrir leiknum vel.

Talið er að hann myndi henta vel inn í lið Arne Slot, þar sem hann gæti veitt leikmönnum á borð við Alexis Mac Allister og Ryan Gravenberch meira frelsi framar á vellinum.

Stiller er með samning við Stuttgart til 2028 og hafa Manchester United og Real Madrid einnig áhuga, ef marka má fréttir. Hann gæti því orðið eftirsóttur biti í sumar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki
433Sport
Í gær

Segir ákvörðun sína ekki tengjast öðru félagi á nokkurn hátt

Segir ákvörðun sína ekki tengjast öðru félagi á nokkurn hátt
433Sport
Fyrir 2 dögum

Verður rekinn og fjórir eru orðaðir við starfið

Verður rekinn og fjórir eru orðaðir við starfið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Gamla konan á Ítalíu horfir til Englands

Gamla konan á Ítalíu horfir til Englands