fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Tímabilið úr sögunni en vonast til að ná HM

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 14. apríl 2026 14:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Cristian Romero mun ekki spila meira með Tottenham Hotspur á þessu tímabili eftir að hafa orðið fyrir liðbandsmeiðslum í hné.

Fyrirliðinn meiddist í leik gegn Sunderland um helgina, í fyrsta leik Roberto De Zerbi við stjórnvölinn. Atvikið átti sér stað þegar Romero lenti í samstuði við markvörðinn Antonin Kinsky í síðari hálfleik.

Romero fór af velli á 70. mínútu í miklu uppnámi og óttaðist það versta, enda mikilvægt tímabil fram undan bæði hjá félaginu og landsliði hans.

Tottenham hefur ekki enn gefið út opinbera yfirlýsingu um meiðslin eða nákvæman bataferil, en talið er að hann þurfi ekki að fara í aðgerð. Hann verður þó frá keppni í síðustu sex leikjum tímabilsins, sem er mikið áfall fyrir liðið sem er í fallbaráttu.

Tottenham er nú tveimur stigum frá öruggu sæti og hefur ekki unnið leik í 14 tilraunum.

Áætlað er að Romero verði frá í allt að átta vikur, en gæti þó náð sér í tæka tíð fyrir HM sem fer fram í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki
433Sport
Í gær

Segir ákvörðun sína ekki tengjast öðru félagi á nokkurn hátt

Segir ákvörðun sína ekki tengjast öðru félagi á nokkurn hátt
433Sport
Fyrir 2 dögum

Verður rekinn og fjórir eru orðaðir við starfið

Verður rekinn og fjórir eru orðaðir við starfið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Gamla konan á Ítalíu horfir til Englands

Gamla konan á Ítalíu horfir til Englands