

Hjónin Kristín Eva Geirsdóttir lögfræðingur og Sverrir Bergmann, tónlistarmaður og samfélags- og sjálfbærnisstjóri hjá Kadeco, eignuðust þriðju dótturina á föstudag.
„Föstudaginn 10. apríl kl.11:46 kom þriðja gullið okkar í heiminn,“ skrifar Sverrir á Instagram. Hann sagði fæðinguna hafa verið langa en gengið vel að lokum.
„Móður og barni heilsast vel og eldri systurnar ráða sér vart af kæti yfir litlu systur. Erum ótrúlega þakklát ómetanlegu starfsfólki Landsspítalans. Hlökkum til að takast á við lífið sem 5 manna fjölskylda.
Eldri dæturnar eru fæddar 2020 og 2021.
View this post on Instagram