
Íslenska kvennalandsliðið leikur gegn Úkraínu í afar mikilvægum leik í undankeppni HM annað kvöld.
Leikurinn fer fram á Laugardalsvelli og þarf Ísland að sækja þrjú stig í baráttunni um þriðja sæti undanriðilsins, en það hefur mikið að segja um framhaldið í umspili um sæti á HM, en þangað hefur Ísland aldrei komist áður.
Veðbankar hafa mikla trú á íslenska liðinu annað kvöld og er stuðull á sigur Íslands á Lengjunni til að mynda 1,41. Stuðull á sigur Úkraínu þar er 5,31 og 4,16 á jafntefli.
Leikurinn hefst klukkan 18:30 annað kvöld. Ísland mætir svo Evrópumeisturum Englands, einnig hér á landi, á laugardag og ljóst er að það verður allt öðruvísi verkefni.