fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Fókus

Raunveruleikastjarnan látin aðeins þrítug að aldri

Fókus
Mánudaginn 13. apríl 2026 09:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dolly Martinez, sem kom fram í 10. þáttaröð raunveruleikaþáttanna My 600-Lb. Life, er látin aðeins 30 ára að aldri. Systir hennar, Lindsey Cooper, greindi frá andlátinu í færslu á samfélagsmiðlum um helgina.

Í tilkynningunni lýsti Lindsey systur sinni sem einstaklega hlýrri og kærleiksríkri manneskju sem hafði haft einstakt lag á að gleðja aðra.

„Dolly gat lýst upp hvaða herbergi sem var með hlátri sínum, góðvild og kærleika,“ skrifaði Lindsey meðal annars. Hún sagðist jafnframt finna huggun í því að systir hennar væri nú sameinuð föður þeirra.

Ekki hefur verið greint frá dánarorsök, en daginn áður hafði LIndsey sagt frá því að Martinez væri á sjúkrahúsi og væri að berjast fyrir lífi sínu.

Martinez vakti athygli í My 600-Lb. Life, þar sem fylgst var með baráttu hennar við matarfíkn og alvarlega offitu. Í þættinum kom fram að hún notaðist við viðbótarsúrefni og glímdi einnig við andlega vanlíðan.

Þrátt fyrir að hún hafi ekki fengið samþykki fyrir megrunaraðgerð í lok þáttarins náði hún engu að síður að léttast um 18 kíló frá upphafsþyngd sinni, sem var 268 kíló.

Raunveruleikaþættirnir My 600-Lb. Life fylgja eftir einstaklingum sem glíma við lífshættulega offitu yfir eins árs tímabil. Nokkrir þeirra sem hafa komið fram í þáttunum hafa því miður látist á undanförnum árum.

Þar á meðal var Larry Myers Jr., sem lést í júní 2023, þremur dögum eftir 49 ára afmæli sitt. Banamein hans var hjartaáfall.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Nær helmingur fólks hefur hugsað um einhvern annan í kynlífi

Nær helmingur fólks hefur hugsað um einhvern annan í kynlífi
Fókus
Fyrir 3 dögum

8 skotheld ráð Ragnhildar til að bæta svefninn – „Því minna sem þú sefur, því fyrr deyrðu“

8 skotheld ráð Ragnhildar til að bæta svefninn – „Því minna sem þú sefur, því fyrr deyrðu“
Fókus
Fyrir 5 dögum

„Á myrkustu stundunum náði sú hugsun í gegn að ég á þrjú börn og ég veit að þau elska mig“

„Á myrkustu stundunum náði sú hugsun í gegn að ég á þrjú börn og ég veit að þau elska mig“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Þriðja dóttirin fædd

Þriðja dóttirin fædd