
Maghnes Akliouche, kantmaður Monaco, gæti verið á förum frá félaginu og er orðaður við ensk stórlið í frönskum miðlum.
Hinn 24 ára gamli Akliouche er algjör lykilmaður hjá Monaco og hefur hann skorað sjö mörk og lagt upp átta í öllum keppnum á leiktíðinni.
Arsenal er talið leiða kapphlaupið um leikmanninn en ensku félögin Chelsea, Manchester United og Liverpool fylgjast einnig með gangi mála, auk þess sem Tottenham sýndi honum áhuga í janúarglugganum.
Monaco vill fá 50-60 milljónir punda fyrir leikmanninn og spurningin er hvort eitthvað félag sé til í að punga út slíkri upphæð.