
Kobbie Mainoo er nálægt því að skrifa undir nýjan langtímasamning við Manchester United, samkvæmt knattspyrnustjóranum Michael Carrick.
Samningurinn á að gilda til ársins 2031 og fela í sér verulega launahækkun fyrir miðjumanninn unga, sem braust inn í aðalliðið árið 2023.
„Þetta er að færast nær og við erum bjartsýnir. Við erum rólegir yfir stöðunni en á góðum stað,“ segir Carragher um stöðu mála.
Framtíð Mainoo var um tíma í mikilli óvissu og var hann í aukahlutverki undir stjórn Ruben Amorim. Allt breyttist þó með komu bráðabirgðastjórans Carrick.
Ekki er ljóst hver tekur við United til framtíðar í sumar en Carrick er á góðri leið með að koma liðinu í Meistaradeildina á ný.