fbpx
Sunnudagur 03.maí 2026
Pressan

Svakalegar myndir frá vinsælum ferðamannastað Íslendinga

Pressan
Fimmtudaginn 2. apríl 2026 21:00

Óvenjulegt ástand á Krít. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Einn maður lést þegar öflugt óveður gekk yfir Grikkland í nótt og olli víða flóðum, samgöngutruflunum og miklu tjóni.

Óveðrið hefur valdið víðtækum usla um landið. Tré hafa víða fokið eða fallið, vegir farið á kaf og samgöngur raskast verulega. Flestar ferjusiglingar liggja niðri og sumir skólar hafa verið lokaðir vegna aðstæðna.

Veðurofsinn er þó ekki það eina sem hefur sett svip sinn á Grikkland síðustu daga. Á eyjunni Krít, sem lengi hefur verið vinsæll áfangastaður meðal Íslendinga, var himinninn sveipaður  óvenjulegum rauð-appelsínugulum lit í gær.

Orsökin var sandryk sem barst frá Sahara-eyðimörkinni og olli meðal annars töfum á flugi. Óhætt er að segja að rykið hafi sett bæði óvenjulegan og nokkuð drungalegan blæ yfir eyjuna.

Veðurstofa Grikklands varaði í dag við áframhaldandi mikilli úrkomu, þrumuveðri og jafnvel hagléli víða um landið. Rauð viðvörun hefur verið gefin út fyrir vestan- og sunnanverða Krít frá hádegi og fram á nótt.

Mynd/Getty
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Ryanair með nýjung á öllum flugvöllum

Ryanair með nýjung á öllum flugvöllum
Pressan
Í gær

Hún blekkti alla með englaandlitinu – Óhugnaður á óhugnað ofan

Hún blekkti alla með englaandlitinu – Óhugnaður á óhugnað ofan
Pressan
Fyrir 4 dögum

Á yfir höfði sér þunga refsingu fyrir að sleikja rör

Á yfir höfði sér þunga refsingu fyrir að sleikja rör
Pressan
Fyrir 4 dögum

Óhugnanleg ráðgáta leyst – Lík fannst sundurbútað í ferðatöskum árið 1998

Óhugnanleg ráðgáta leyst – Lík fannst sundurbútað í ferðatöskum árið 1998
Pressan
Fyrir 4 dögum

Varalesari varpar ljósi á viðvörun Trumps til Karls – „Við ræðum þetta síðar“

Varalesari varpar ljósi á viðvörun Trumps til Karls – „Við ræðum þetta síðar“
Pressan
Fyrir 5 dögum

Konan sem giftist föður sínum rýfur þögnina um stöðu sína í dag

Konan sem giftist föður sínum rýfur þögnina um stöðu sína í dag