fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 27. febrúar 2026 21:42

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Forráðamenn FH töldu að heilsu leikmanna væri ógnað í leik gegn Fylki í kvöld. Sökum þess neitaði liðið að spila síðari hálfleikinn. Þetta segir Davíð Þór Viðarsson, yfirmaður knattspyrnumála hjá FH við 433.is.

FH heimsótti Fylki í Lengjubikarnum í kvöld en vonskuveður var í fyrri hálfleik, snjó kyngdi niður og nokkur vindur var á svæðinu.

Aðstæður löguðust mikið í hálfleik en þá voru FH-ingar farnir heim.

Davíð segir að FH hafi óskað eftir því að leikurinn yrði flautað af vegna aðstæðna. Það vildi Helgi Mikael Jónasson, dómari leiksins ekki gera, segir Davíð í samtali við 433.is. Davíð segir atvik í fyrri hálfleik hafa verið á þann veg að leikmenn hafi hreinlega verið í hættu.

Hálfleikurinn var tæpur hálftími en þá hafði veður lagast og vallarstarfsmenn Fylkis mokað völlinn.

Davíð segir FH-inga ekki hafa viljað ógna heilsu leikmanna, rúmur mánuður sé í að Besta deildin hefjist og það sé ekki áhættunnar virði að spila við svona aðstæður. Félagið muni borga sektina sem það fær vegna málsins.

Þegar síðari hálfleikurinn átti að fara af stað voru FH-ingar farnir heim á leið og tapa leiknum 3-0.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Karólína staðráðin í að leyfa þessu ekki að gerast – „Yrði mjög sorglegt“

Karólína staðráðin í að leyfa þessu ekki að gerast – „Yrði mjög sorglegt“
433Sport
Í gær

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá
433Sport
Fyrir 2 dögum

Talaði fallega um lífið sem hann hafði átt nokkrum dögum áður en hann lést

Talaði fallega um lífið sem hann hafði átt nokkrum dögum áður en hann lést
433Sport
Fyrir 2 dögum

Sádarnir draga saman seglinn og Salah fær ekki sama tékka og áður var í boði

Sádarnir draga saman seglinn og Salah fær ekki sama tékka og áður var í boði