fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling

Hörður Snævar Jónsson
Laugardaginn 28. febrúar 2026 14:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Robin van Persie, þjálfari Feyenoord, hefur gagnrýnt harðlega „óviðeigandi“ gagnrýni á Raheem Sterling eftir fyrstu mínútur hans með félaginu.

Sterling kom til hollenska liðsins fyrr í þessum mánuði eftir að hafa samið við Chelsea um að rifta samningi sínum. Hann lék sinn fyrsta leik í 2-1 sigri gegn Telstar síðastliðinn sunnudag.

Eftir að hafa verið án leikja í um níu mánuði hjá Chelsea var Sterling eðlilega ryðgaður og fékk töluverða gagnrýni á samfélagsmiðlum.

Van Persie tók leikmann sinn í vörn fyrir leik Feyenoord gegn FC Twente. „Ef fólk hefur einhverja tilfinningu fyrir samhengi, hvaðan hann kemur og hvað hann hefur afrekað, þá skilur það stöðuna,“ sagði hann.

Hann benti á að Sterling hefði ekki æft með liði í marga mánuði og að óraunhæft væri að dæma hann eftir aðeins hálftíma á vellinum.

Van Persie viðurkenndi að gagnrýni fylgi fótboltanum, en sagði hana í þessu tilviki algjörlega óviðeigandi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki
433Sport
Í gær

Segir ákvörðun sína ekki tengjast öðru félagi á nokkurn hátt

Segir ákvörðun sína ekki tengjast öðru félagi á nokkurn hátt
433Sport
Fyrir 2 dögum

Verður rekinn og fjórir eru orðaðir við starfið

Verður rekinn og fjórir eru orðaðir við starfið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Gamla konan á Ítalíu horfir til Englands

Gamla konan á Ítalíu horfir til Englands