fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna

Hörður Snævar Jónsson
Laugardaginn 28. febrúar 2026 13:30

Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

David Moyes, knattspyrnustjóri Everton, segir að aukin áhersla á föst leikatriði sé farin að gera fótbolta líkari glímu og kallar eftir því að dómarar taki fastar á svokölluðum „skítabrögðum“.

Everton fékk gagnrýni eftir 1-0 tap gegn Manchester United þar sem leikmenn liðsins þröngvuðu sér inn í markteiginn og settu mikla pressu á markvörðinn Senne Lammens. Moyes segir þó að það hafi ekki verið ætlunin.

„Í hreinskilni sagt var þetta ekki planið hjá okkur í hornspyrnum og erfitt var að koma skilaboðunum til skila,“ sagði hann.

Hann telur þó stærra vandamál liggja að baki. „Það hefur fengið að þróast þannig að menn eru að blokka markverði og varnarmenn og dómarar virðast ekki vilja skipta sér af þessu.“

Moyes segir leikinn nú á köflum minna á glímu. „Áður fyrr var dæmt aukaspyrna fyrir slíkt, en nú er þetta orðið stór hluti leiksins.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki
433Sport
Í gær

Segir ákvörðun sína ekki tengjast öðru félagi á nokkurn hátt

Segir ákvörðun sína ekki tengjast öðru félagi á nokkurn hátt
433Sport
Fyrir 2 dögum

Verður rekinn og fjórir eru orðaðir við starfið

Verður rekinn og fjórir eru orðaðir við starfið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Gamla konan á Ítalíu horfir til Englands

Gamla konan á Ítalíu horfir til Englands