fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 27. febrúar 2026 15:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Newcastle United er farið að skoða möguleika á að styrkja markvarðarstöðuna til lengri tíma og hefur beint sjónum sínum að tveimur ungum markvörðum í ensku úrvalsdeildinni.

Samkvæmt heimildum hafa Newcastle-menn áhuga á Bart Verbruggen, landsliðsmarkverði Hollands sem leikur með Brighton, og James Trafford, markverði Manchester City. Báðir eru þeir 23 ára gamlir og taldir meðal efnilegustu markvarða sinnar kynslóðar.

Markmiðið er að finna arftaka fyrir Nick Pope, aðalmarkvörð liðsins, sem er orðinn 33 ára gamall. Pope hefur verið lykilmaður hjá Newcastle undanfarin ár, en félagið vill tryggja stöðugleika til framtíðar með því að undirbúa sig fyrir kynslóðaskipti í markinu.

Verbruggen hefur slegið í gegn hjá Brighton með góðri spilamennsku og ró í markinu, á meðan Trafford er hátt metinn hjá Manchester City þrátt fyrir takmarkaða spilatíma.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki
433Sport
Í gær

Segir ákvörðun sína ekki tengjast öðru félagi á nokkurn hátt

Segir ákvörðun sína ekki tengjast öðru félagi á nokkurn hátt
433Sport
Fyrir 2 dögum

Verður rekinn og fjórir eru orðaðir við starfið

Verður rekinn og fjórir eru orðaðir við starfið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Gamla konan á Ítalíu horfir til Englands

Gamla konan á Ítalíu horfir til Englands