fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Arnar: „Þetta hefur verið erfiður tími fyrir mig persónulega“

Helgi Fannar Sigurðsson
Þriðjudaginn 24. febrúar 2026 21:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari er brattur fyrir vináttuleiknum við Mexíkó aðfaranótt fimmtudags. Hann fer í leikinn til að ná í úrslit.

Lið Íslands er að mestu skipað leikmönnum úr Bestu deildinni og það mexíkóska inniheldur leikmenn úr deildinni heima fyrir einnig.

Arnar telur að það verði gott að komast út á völl, nú þegar nokkrir mánuðir eru liðnir frá svekkjandi jafntefli við Úkraínu í undankeppni HM, þar sem Íslandi mistókst að komast í umspil.

„Þessi leikur hefur mikla þýðingu. Það er langt liðið síðan við spiluðum við Úkraínu. Þetta hefur verið erfiður tími fyrir mig persónulega, fjórir mánuðir. Það er mikil gleði að vera loks komnir út á völl.

Svo er þetta bara landsleikur. Það er alveg sama hvort bestu leikmennirnir eru að mæta eða ekki. Við viljum standa okkur vel og ná í úrslit,“ segir Arnar við miðla KSÍ.

Leikurinn er þýðingarmikill fyrir þá leikmenn sem hann spila.

„Þeir eru ekki bara að koma fram fyrir hönd þjóðarinnar heldur líka Bestu deildarinnar. Þetta eru elítuleikmenn úr okkar sterkustu deild og það er gaman fyrir þá að máta sig á móti sterku liði Mexíkó.“

Leikurinn hefst klukkan 02 aðfaranótt fimmtudags. Búist er við 34 þúsund stuðningsmönnum Mexíkó á vellinum.

Viðtalið við Arnar í heild er í spilaranum hér ofar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna
Sport
Fyrir 2 dögum

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum
433Sport
Fyrir 2 dögum

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina
433Sport
Fyrir 2 dögum

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“