fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Mourinho fær á baukinn – Gamlar stjörnur ósáttar við tón hans eftir meint kynþáttaníð

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 18. febrúar 2026 17:30

Jose Mourinho

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jose Mourinho hefur sætt harðri gagnrýni eftir ummæli sín í kjölfar meints kynþáttaníðs í leik Benfica og Real Madrid í Meistaradeildinni.

Eftir að Vinicius Junior skoraði í seinni hálfleik leitaði hann til dómarans og kvartaði undan meintu kynþáttaníði af hálfu Gianluca Prestianni í Benfica.

Í viðtali eftir leik lagði Mourinho áherslu á að fögnuður Vinicius hefði skapað spennu á vellinum og sagðist ekki vilja taka afstöðu til þeirra ásakana sem fram komu. Hann benti jafnframt á sögu Benfica og sagði félagið ekki rasískt.

Ummælin féllu hins vegar í grýttan jarðveg. Fjölmargir stuðningsmenn lýstu yfir vonbrigðum með viðbrögð hans og töldu að hann hefði átt að sýna meiri samstöðu með leikmanni sem tilkynnti um kynþáttaníð, í stað þess að gefa í skyn að Vinicius hafi kallað þetta yfir sig sjálfur með fagnaðarlátum.

Fyrrum enskir landsliðsmenn tóku undir þá gagnrýni. Wayne Rooney og Theo Walcott sögðust ósáttir við tóninn í viðtalinu, á meðan Clarence Seedorf taldi að Mourinho hefði einfaldlega átt að halda sig til hlés eftir leikinn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki
433Sport
Í gær

Segir ákvörðun sína ekki tengjast öðru félagi á nokkurn hátt

Segir ákvörðun sína ekki tengjast öðru félagi á nokkurn hátt
433Sport
Fyrir 2 dögum

Verður rekinn og fjórir eru orðaðir við starfið

Verður rekinn og fjórir eru orðaðir við starfið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Gamla konan á Ítalíu horfir til Englands

Gamla konan á Ítalíu horfir til Englands