fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Fær hressilega á baukinn – Hlutirnir farið úr öskunni í eldinn frá því hann yfirgaf United

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 16. febrúar 2026 08:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Andre Onana hefur sætt mikilli gagnrýni frá stuðningsmönnum Trabzonspor eftir 3-2 tap á heimavelli gegn toppliði Fenerbahce um helgina.

Markvörðurinn, sem er á láni frá Manchester United, fékk á sig þrjú mörk úr þremur skotum á markið í leiknum. Hann fékk þá gult spjald í leiknum einnig, til að bæta gráu ofan á svart.

Trabzonspor situr í þriðja sæti tyrknesku úrvalsdeildarinnar, en tapið dró verulega úr titilvonum liðsins. Onana hóf dvöl sína í Tyrklandi af krafti og var valinn maður leiksins í sínum fyrsta leik, en frammistaðan hefur dalað síðustu vikur.

Hefur hann fengið að heyra það frá bæði stuðningsmönnum og fjölmiðlum. Lánsdvölin gengur því ekki eftir væntingum, en Onana tókst heldur ekki að heilla í treyju United.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki
433Sport
Í gær

Segir ákvörðun sína ekki tengjast öðru félagi á nokkurn hátt

Segir ákvörðun sína ekki tengjast öðru félagi á nokkurn hátt
433Sport
Fyrir 2 dögum

Verður rekinn og fjórir eru orðaðir við starfið

Verður rekinn og fjórir eru orðaðir við starfið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Gamla konan á Ítalíu horfir til Englands

Gamla konan á Ítalíu horfir til Englands