fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Rasistar sögðu Balotelli ítrekað að fá sér banana

Helgi Fannar Sigurðsson
Föstudaginn 13. febrúar 2026 20:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mario Balotelli segist hafa orðið fyrir ítrekuðu kynþáttaníði í leik í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.

Ítalski framherjinn, sem er 35 ára, leikur nú með Al-Ittifaq og greindi hann frá því á Instagram að hann hafi orðið fyrir aðkasti vegna húðlitar síns í 2-0 tapi gegn Dubai City á miðvikudag.

„Þau sögðu mér ítrekað að fara að borða banana. Það er enginn staður fyrir kynþáttafordóma í fótbolta eða samfélaginu,“ skrifaði Balotelli.

Hann sagðist hafa verið sleginn yfir atvikinu og krafðist þess að gripið yrði til aðgerða.

„Svona hegðun má ekki hunsa. Ég tala ekki bara fyrir sjálfan mig heldur alla þá leikmenn sem hafa orðið fyrir þessu. Nú er nóg komið.“

Balotelli á að baki feril hjá stórliðum á borð við Manchester City og Liverpool, en hefur á síðustu árum leikið víða um Evrópu áður en hann flutti til Sameinuðu arabísku furstadæmana.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki
433Sport
Í gær

Segir ákvörðun sína ekki tengjast öðru félagi á nokkurn hátt

Segir ákvörðun sína ekki tengjast öðru félagi á nokkurn hátt
433Sport
Fyrir 2 dögum

Verður rekinn og fjórir eru orðaðir við starfið

Verður rekinn og fjórir eru orðaðir við starfið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Gamla konan á Ítalíu horfir til Englands

Gamla konan á Ítalíu horfir til Englands