fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Rodri kærður – Sekt eða bann bíður hans

Helgi Fannar Sigurðsson
Föstudaginn 13. febrúar 2026 15:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rodri, miðjumaður Manchester City hefur verið kærður af enska knattspyrnusambandinu vegna ummæla sem hann lét falla um dómara eftir 2-2 jafntefli gegn Tottenham fyrr í mánuðinum.

Hinn 29 ára gamli Rodri var ósáttur við að mark Dominic Solanke skyldi standa, en í aðdraganda marksins virtist framherjinn sparka í Marc Guehi.

„Ég veit að við höfum unnið of mikið og fólk vill ekki að við vinnum, en dómarinn verður að vera hlutlaus. Það er ekki sanngjarnt því við leggjum svo hart að okkur,“ sagði Rodri til að mynda.

Enska knattspyrnusambandið telur ummælin brjóta gegn reglum um gagnrýni á dómara. Rodri hefur frest til að svara kærunni og gæti átt yfir höfði sér sekt eða bann.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki
433Sport
Í gær

Segir ákvörðun sína ekki tengjast öðru félagi á nokkurn hátt

Segir ákvörðun sína ekki tengjast öðru félagi á nokkurn hátt
433Sport
Fyrir 2 dögum

Verður rekinn og fjórir eru orðaðir við starfið

Verður rekinn og fjórir eru orðaðir við starfið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Gamla konan á Ítalíu horfir til Englands

Gamla konan á Ítalíu horfir til Englands