

Daníel Hafsteinsson, lykilmaður Íslandsmeistara Víkings, var Gestur Helga Fannars Sigurðssonar í nýjasta þætti af Íþróttavikunni.
Daníel gekk í raðir Víkings í fyrra, nokkru eftir að hann rifti samningnum við uppelsifélag sitt KA. Hann lék um stutt skeið í atvinnumennsku með Helsingborg í Svíþjóð fyrr á ferlinum og skoðaði það alvarlega að fara aftur út áður en hann samdi við Víking.
„Það var klárlega inni í myndinni. En ef ég á að tala hreina íslensku var bara aldrei neitt almennilegt í boði. Það var hátt á lista að fara aftur út, ekki endilega færa mig um set á Íslandi. En ef þú ætlar að gera það viltu fara í Víking,“ sagði Daníel, sem er opinn fyrir því að fara út síðar.
„Ég ætlaði ekki að fara að bíða fram í mars eftir einhverju move-i. Maður þurfti að lenda einhvers staðar. En stutta svarið er að það var lítið sem ekkert í boði.
Ef það kæmi eitthvað sem væri rétt skref væri ég alveg klárlega til í það. En ég er á frábærum stað. Við erum á leið í Evrópu núna og ég er meðvitaður um hvað við erum á geggjuðum stað og með góðan hóp.“
Þátturinn er í spilaranum.