fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Arsenal tapaði stigum í toppbaráttunni

Helgi Fannar Sigurðsson
Fimmtudaginn 12. febrúar 2026 21:58

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Brentford og Arsenal deildu með sér stigunum í lokaleik umferðarinnar í ensku úrvalsdeildinni.

Topplið Arsenal var ekki sannfærandi í kvöld en Noni Madueke kom þeim yfir með skallamarki eftir klukkutíma leik.

Tíu mínútum síðar svaraði Keane Lewis-Potter með skallamarki fyrir heimamenn og staðan orðin jöfn á ný.

Lokamínúturnar voru spennandi og lið Brentford var ekki síður líklegt til að sækja sigurinn. Lokatölur urðu þó 1-1.

Arsenal er nú með aðeins fjögurra stiga forskot á Manchester City á toppi deildarinnar. Brentford er í sjöunda sæti, aðeins fjórum stigum frá fjórða sætinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki
433Sport
Í gær

Segir ákvörðun sína ekki tengjast öðru félagi á nokkurn hátt

Segir ákvörðun sína ekki tengjast öðru félagi á nokkurn hátt
433Sport
Fyrir 2 dögum

Verður rekinn og fjórir eru orðaðir við starfið

Verður rekinn og fjórir eru orðaðir við starfið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Gamla konan á Ítalíu horfir til Englands

Gamla konan á Ítalíu horfir til Englands